-----
-----
Sú var heppin
Drengur (6 ára) á Engjarós segir við kennara á Smára. „Ertu ólétt'“
Kennarinn: „já“
Drengur: „Áttu mann“
Kennarinn: „já“
Drengur: „Vá þú heppin. Ef þú værir núna í gamla daga og værir ólétt en
ættir engan mann - þá væri þér drekkt í drekkingarhyl!“
-----
Orðarugl:
Stúlka 5 ára er að fara í brú og jafnaldri hennar spyr hana „Hvernig
geturðu þetta?“
Önnur 5 ára svarar: „Það er af því að hún er í fimleikum.
„Nei“ segir þá sú liðuga „ Það er út af því að ég er svo ólétt“
„Ég er með yfirgang“ saði ein stúlka um erfiðleika við
hægðir.
-----
Með kalt blóð
Drengur 2ja ára lá á gólfinu að leika sér þegar hann upp úr eins
manns hljóði sagði „Ég heiti X og ég er trúðfiskur“
-----
Dugleg stelpa:
Ein 2ja ára situr og er að púsla þegar kennarinn spyr hana hvar hún
hafi fengið þennan hálskraga sem hún er með. Sú stutta svarar af bragði
„Æi ég prjónaði hann bara“
-----
Sérfræðiþekking:
5 ára telpa: „Veistu að þegar ég var veik þá var ég fyrst með
taugar.....“
Kennari: „Taugar?“
Telpan: „Já, ég var fyrst með taugar......“
Jafnaldra hennar grípur þá fram í „Fékkstu svo kannski áfall“
-----
Stjórnmál:
Drengur er að kubba úr segulkubbum. Hann býr til hring og spyr kennarann
hvort hann viti hvað þetta sé. Kennarinn neitar því og þá segir
drengurinn „Þetta eru svona ríkisstjórnargleraugu“
-----
Tillitssemi:
Umræður hafa skapast við matarborðið um að orð geti meitt engu síður en
hnefar og 4ra ára börnin hlusta með athygli á kennarann sem upplýsir þau
um þessa staðreynd. Nokkrum dögum síðar kemur einn drengurinn til
kennarans og segir:
„Kennari, er ekki ljótt að segja feitabolla?“
„Jú“ svarar kennarinn „fólk tekur nærri sér þegar svoleiðis er sagt við
það“
„Ég vissi það“ segir þá drengurinn sigrihrósandi og bætir svo við
blíðlega „Þú ert bara feit“
-----
Vaðlaheiðargangnaverktaki?
Drengur 4ra ára gamall kemur til kennara og segir:
„Ég ætla að bjóða þér til Kína!“
„Nú!“ svaraði kennarinn „Ert þú að fara til Kína?“
„Nei“ svaraði drengurinn „Ég er að grafa göng úr garðinum mínum!!“
-----
Það vantaði eitthvað í toppstykkið
4ra ára drengur var á leið út en virtist hafa gleymt að klæða sig í
útifötin.
Kennarinn vildi hjálpa til og sagði við hann: „Það vantar eitthvað á
höfuðið á þér...“
Drengurinn svaraði að bragði: „Já, heilann! Ég gleymdi að setja hann á
míg í morgun!!!“
-------
Merking orðanna getur
verið misvísandi:
Einn 5 ára segir við kennarann: "Ég er með varalit"
Hún svarar: "Já, ertu með varalit?"
"Nei", leiðréttir drengurinn, "ég er ekki með varlalit heldur vara-lit!"
(og átti þá við trélit sem hann var búinn að stinga bak við eyrað -
svona til vara!)
-------
Það var verið að tala um smáfuglana sem sáust fyrir utan gluggann.
Kennarinn spyr: "Vitið þið hvað þeir heita?"
5 ára drengur svarar: "Já! Já! Snjótittlingar!"
En 5 ára stelpa er fljót að bæta við: "Já, og á sumrin heita þeir
sumtittlingar!"
-------
Maður á alltaf að segja það sem manni finnst - er það ekki?
Einhver grét hástöfum í fataherberginu og kennari sem var með báðar
hendur fullar bað eina 4 ára um að hugga skólafélaga sinn. Hún
svarar snögg upp á lagið: "Nei, mér finnst ekkert gaman að hugga".
-------
4 ára stelpa segir stolt við hópinn sinn: "Ég elska sko pabba minn
af því hann er alltaf svo snöggur í sokkana á morgnana!"
-------
Rökfræði barna er oft skemmtileg:
Börnin voru að skoða spenana á kúnum (á mynd) í samverustund.
Einn 5 ára segir: "Mamma mín mjólkar oft svona til að geta prjónað
græna vettlinga".
Annar 5 ára svarar hneykslaður: "Nei-hei! Það er ekki hægt!"
"Jú", staðhæfir sá fyrri, "ef það er hægt að fá ost út úr þessu er líka
hægt að fá græna vettlinga".
-------
Ekki mjög jafnréttissinnuð ennþá:
Ein 2 ára á Gleym-mér-ei kemur auga á borvél og segir: "Þetta er
svona karlavél..."
-------
Í fataherberginu voru
börnin á leið út og flestir önnum kafnir við að kæða sig - nema einn 5
ára drengur sem var eitthvað að slugsa. Kennarinn vill hvetja hann
áfram og segir: "Drífðu þig nú í fötin, Lárus minn, svo þú missir
ekki af fjörinu úti". Drengurinn svarar grafalvarlegur: "Það
verður ekkert fjör hjá mér, ég er að fara í svo ljótan leik!"
-------
Mannaþefur í helli mínum…
Ein stelpan á Smára var að koma í skólann og varð að orði:
“Ummm… Ég finn lykt af Regínu!” (sem er
skólafélagi hennar)
-------
Hópur barna var í vettvangsferð með kennaranum sínum og þótti ástæða
til að hafa styrka hönd til að leiða eina stelpuna svo hún færi sér ekki
að voða. Hún var ekki alveg sátt við það og verður að orði:
"Ekki toga svona í hendina mína, hún slitnar af!"
-------
Mörgu segja börnin frá:
Kennarinn var að skoða stafinn F með hópnum sínum og börnin spreyttu
sig á að finna orð sem byrja á F.
Kennarinn benti á orðið "flækja" og þá sagði ein stelpan:
"Veistu, hann pabbi minn flækti sig í brókinni í morgun og datt!"
-------
Góður punktur!
Fimm ára drengur var þungt hugsi og spurði svo kennarann:
"Af hverju heitir hann Palli alltaf Páll Magnús þegar hann er óþekkur??"
-------
Nokkur mismæli:
"Hei! Þarna eru margir unglingar. Þeir eru margir - einn
er bara litlvaxinn" (eða semsagt smávaxinn!)
"Þú verður að gera hommíurnar, þetta eru sko hommíur"
(Ein 5 ára að lita fjársjóðskort þar sem meðal annars
mátti sjá hafmeyjur)
"Hvenær förum við í Laugardagsgötuna?" (og átti við Laugargötuna, í
íþróttahúsið)
Í hádeginu var grænmetissúpa á borðum og verið var að ræða um
innihaldið, eins og blómkál, aspas, krydd, mjólk og fleira. Þau
skiptust á skoðunum um hvað þeim þætti gott og svo segir einn strákanna:
"... og mér finnst líka góður rasspars!"
Ein 3 ára var í fataherberginu að klæða sig í strigaskóna en gekk
erfiðlega svo hún leit upp og bað um strigahorn!
(eða semsagt skóhorn)
-------
Í hvíldartíma á Gleym-mér-ei átti ein stelpan eitthvað erfitt með að
leggjast undir teppið sitt eins og hinir krakkarnir. Kennarinn
snýr sér að henni, ætlar að leggja hana niður og segir um leið:
"Jæja, kerlingin mín..."
Þá gall í þeirri litlu: "Ég er stelpa!"
-------
Listamaður að störfum:
Nokkur börn á Smára voru að teikna og kennarinn spyr einn 4 ára
dreng hvað hann sé að teikna.
Hann svarar að bragði: "Ég veit það ekki, ég hef aldrei séð þetta
áður!"
-------
Stelpa eða strákur?
Á Smára eru salernin merkt kynjunum og eitt sinn sat einn af elstu
strákunum á klósettinu "stelpumegin". Þá dettur upp úr honum:
"Ég held ég sé kannski að breytast í stelpu af því að hárið á mér er svo
sítt".
-------
Borgar sig að vera prúður...
Öll börnin og starfsfólkið fengu barmmerki á 10 ára afmæli skólans
og þeim var nælt í peysurnar þeirra eftir söngsalinn um morguninn.
Einn kennarinn varð einhverra hluta vegna af merkinu og vantaði það í
barminn. Annar spurði hvers vegna stæði á því og þá var einn 4 ára
drengur með svar á reiðum höndum:
"Af því hún var ekki nógu stillt og þæg eins og við vorum!"
-------
Heyrðist í fataherberginu:
"Mér líður eins og smjöri í þessum fötum - ég er alveg að bráðna.
-------
Kennari á Engjarós var að ræða við börnin um ömmur og afa og segir
þeim jafnframt að hún eigi ömmu sem er alveg að verða 90 ára. Þá
lítur einn drengjanna á hana og segir: "Þá er hún alveg að verða
dauð".
-------
Nýyrði:
Við vorum að borða hádegisverð og börnin voru mishrifin af matnum.
Einn 5 ára gerði gott úr öllu saman og sagði:
"Ég mundi ekki segja ojbarasta, af því mér finnst þetta gott. Ég
mundi bara segja gottamaska!"
-------
Fimm ára stúlka var að segja frá við matarborðið:
"Í gamla daga voru ekki til nein hús á Íslandi og engir bílar og
engar götur... bara risaeðlur og labradorar... eða karnatorar... æ, ég
man það ekki alveg!"
-------
5 ára spekingur: "Alltaf þegar einhver er góður við mig þá
hlýði ég honum eins og hundur".
-------
Lausir líkamspartar
Ein 4 ára var að klæða sig úr peysunni en átti í smá erfiðleikum því
hálsmálið var svo þröngt.
Hún snýr sér að kennaranum og segir: "Æi, viltu hjálpa mér að taka
hausinn af?"
-------
Smá misskilningur..
Börnin voru að mála íslenska fánann og kennarinn var að útskýra
merkingu litanna.
"Blár er fyrir sjóinn, hvítur er ís og rauður er eldur"
Þá gellur í einum drengnum: "Ha! Rauðar endur???!"
-------
Í einni strætóferðinni leit 5 ára drengur á einn farþegann og
spurði: "Hæ maður! Varst þú til í gamla daga?"
-------
Úti á leikvellinum:
Fimm ára drengur var að fylgjast með tveimur stelpum að hlaupa og
segir:
"Ég get sko hlaupið hraðar en þær!"
"Já, er það?" spyr einn kennarinn.
"Jahá! Ég get sko hlaupið á kílómetra hraða!"
-------
Afi minn og amma mín...
Við matarborðið á Engjarós var verið að ræða um afa og ömmur.
Einn 5 ára lítur á kennarann sinn og segir: "Langa-langa-langa amma mín
og afi eru loksins dauð".
-------
Í leikskóla er gaman...
Einn kennarinn var að festa fjörugull í net þegar að kemur ein 3 ára
af deildinni hennar. Stelpan spyr hvað kennarinn sé að gera og
viðkomandi svarar því til að hún sé nú bara að leika sér með þetta
fjörudót, hún hafi svo gaman af að leika sér og þess vegna hafi hún
ákveðið að verða leikskólakennari.
Sú stutta hugleiðir þetta aðeins, stígur svo af hjólinu og spyr hvort
kennarinn vilji ekki fá þríhjólið lánað!
-------
Mörg eru starfsheitin:
4 ára stelpa tilkynnti hróðug: "Pabbi minn er sjóræningi!" (en
hann er reyndar sjómaður)
-------
Læknavísindin:
4 ára stúlka snýr sér að kennaranum sínum og segir: "Veistu að
hann afi minn er í Reykjavík í viðgerð?"
"Nú... hvernig viðgerð?" spyr kennarinn.
"Æi... það er verið að gera við hjartað í honum" svarar sú stutta.
-------
Afmælissöngur:
Börnin voru að syngja afmælissönginn og einhver söng á ensku "Happy
Birthday to you". Annar tók undir en misskildi eitthvað textann og
söng: "Bubbi Morthens to you..."
-------
Í fataherberginu:
Tveir 4 ára voru að klæða sig í og annar þeirra klæddi sig í
gúmmískó. Hinum varð litið niður á þá og segir áhyggjufullur:
"Ó, ó, ó, það er búið að brjóta stígvélin!"
-------
Á Rugludeginum í maí:
Þegar börnin sátu og borðuðu hádegismatinn byrjaði að snjóa og einn
kennarinn sagði: "Hva...? Af hverju ætli snjói núna, er ekki komið
sumar??" Allir þögðu smá stund, en svo svarar einn 3 ára:
"Jú... það er rugludagur!"
- sem var auðvitað rétt.
-------
Í danskennslu:
Kennarinn segir: "Og svo á að vera duglegur að dansa og hreyfa
sig..."
3 ára drengur segir þá: "Já, það á ekki að vera svona
snýtukarl!" (og meinti spýtukarl
)
-------
Tveir drengir voru að tala saman eftir að
foreldrar þess eldri voru nýkomnir frá útlöndum og var hann að lýsa því
hvað þau höfðu komið með handa honum. Segir síðan: "Þú verður bara
að koma heim til mín og sjá það"
Sá yngri svarar: "En ég veit ekki hvar þú átt heima?"
"En elsku vinur, ég á heima í Skessugili!" segir þá hinn.

-------
Krakkarnir voru að spyrja Hafdísi um systkini hennar og hvað þau heita.
Hún segir þeim það og jafnframt að einn bróðir hennar heiti Dylan
Israel.
Þá segir einn 5 ára: "Já, finnst honum ís svona góður??"
-------
Dinglumdangl...
Einn drengur var kominn í útigallann og sagði svo við einn
kennarann:
"Heyrðu, typpið mitt hreyfist!"
"Já, er það?" svarar hún.
"Já" segir hann þá og dillar sér aðeins. "Svona eins og bjalla!"
-------
Sérstök hjálpartæki:
Nokkrir strákar á Smára ætluðu að klippa út myndir. Einn 5 ára
tekur vinstrihandarskæri og ætlar að fara að klippa.
Þá segir einn félagi hans: "Þú getur ekki notað þessi skæri!"
"Nú?" svarar sá með skærin.
"Af því þau eru fyrir fatlaða!" var svarað að bragði.
-------
Góður matur í Kiðagili:
4 ára drengur var að skammta sér í annað sinn á diskinn, fékk sér
stóran skammt og sagði alvarlegur í bragði: "Þetta er alveg
yndislegur matur".
Annar 4 ára við borðið tók í sama streng og sagði: "Jáhá, þetta er
alveg ofsa, rosa gott!"
-------
Hópur barna var búinn að vera í löngum göngutúr og voru á leið til baka.
Ein 5 ára segir: "Hausinn á mér er svo þreyttur..."
"Nú, er það?"
"Já, ég held að hann sé bara alveg að detta af!"
-------
Veit mannanafnanefnd af þessu?
Krakkarnir á Gleym-mér-ei voru að tala um hvað amma þeirra og afi
heita.
Einn strákurinn sagði: "Afi minn er kallaður Halli"
Annar 4 ára segir: "Afi minn er nú bara kallaður rugludallur!"
-------
Á vetrarleikunum:
5 ára þátttakandi úr barnahópnum spyr stjórnandann:
"Má ég hætta?"
"Nei", var svarað. "Þú ert að fara að keppa!"
Þá snýr hann sér undan og segir grafalvarlegur:
"Þetta er hundleiðinlegt líf..."
-------
Hvernig klæðir starfsfólkið sig eiginlega?
Þetta heyrðum við frá einni móður 4 ára drengs:
Hann var að handfjatla nærbrók, setti hana á höfuðið á sér og sagði:
"Mamma, ég er Hafdís!"
(en hún einmitt starfsmaður á deildinni hans)
-------
Snemma byrjar það...
Tveir fimm ára drengir voru að tala saman um stelpur.
Annar segir:
"Hún er sætasta stelpan í heimi".
Þá segir hinn með áherslu:
"Nei, hún er sætasta stelpan forever!"
-------
Á snyrtistofunni:
Tvær stelpur voru í hárgreiðsluleik og einbeittu sér að því að
snyrta og greiða einum kennararanum. Þær bleyttu á henni hárið og
settu spennur hér og þar. Þegar allt leit orðið vel út sagði sú
eldri: "Nú ert þú orðin fín og getur farið á bjórball!"
-------

Morgunverður:
Einn daginn var verið að prófa nýja tegund af jógúrt í
morgunverðinum og ekki öll börnin hrifin af bragðinu. Einn 4 ára
vildi vera kurteis og sagði:
"Ég tími bara ekki að borða þetta!"
-------
Eitthvað ofan á
brauð...?
Ein 5 ára að klæða sig í stígvélin:
"Ég þarf kannski ullarsokka svo mér verði ekki kalt en ég er samt með
svona álegg í stígvélunum...!" (sem reyndist vera nýju innleggin hennar)
-------
Í skólahópnum:
Við erum að tala um stafinn Æ og höfum fundið mörg orð sem byrja á
stafnum Æ.
Einum drengnum finnst farið hratt yfir og Gulla spyr hann: "Er
þetta of mikið að meðtaka í einu?"
Þá lítur hann á hana og segir snaggaralega: "Hvernig væri að sýna
smá miskunn!!?"
-------
Einn af stóru strákunum lá í hnipri á gólfinu.
Kennarinn spyr: "Ertu að gráta?"
Þá kemur einn 4 ára og segir: "Kannski er hann að hvísla til
Guðs...?"
-------
"Góður er grauturinn gæskan"
Það er mjólkurgrautur í matinn og allir borða með bestu lyst. Þá
segir einn 5 ára við félaga sinn:
"Veistu hvað? Þegar ég er orðinn stór og búinn að eignast börn
ætla ég alltaf að elda handa þeim mjólkurgraut!"
-------
Smá misheyrn:
Tarsan-hópurinn er að borða hádegismat þegar einn kennari gengur inn í
Listagil og segir um leið:
"Verði ykkur að góðu"
Þá bergmálar í einum drengnum: "....verður að vera góður...."
-------
Meira um misheyrn...
"Hvað er á hendinni á þér Halla?"
"Þetta er exem" svarar Halla.
"Þá gellur í einni 3 ára: "Hún er aksjonman!"
-------
Ein 3 ára kemur fram eftir hvíldina og segir við Siggu:
"Ég meiddi mig í rassinn..."
"Æ, meiddirðu þig!" segir Sigga með mikilli samúð.
"Já, í hinn rassinn!" svarar stelpan (og átti þá við aðra rasskinnina).
-------

Já, allt kenna þeir nú í þessum Háskóla:
"Pabbi minn er í vinnu og mamma er í skóla".
"Veistu hvað hún er að læra?" spyr kennarinn.
"Já, hún er að læra að vera Batman!"
-------
Umræður við matarborðið á Gleym-mér-ei:
"Ég á mömmu!" byrjar einn.
"Ég á líka mömmu!" svarar annar.
"Ég á líka mömmu" bætir Andreas, kennarinn, við.
Þá snýr einn 3 ára sér að Andreasi og segir:
"Nei, þú átt ekki mömmu.... Þú átt Hugrúnu!" (en hún er annar kennari á
deildinni).
-------
Ein 5 ára úti á leikvellinum:
"Þegar ég fæddist var ég með mikið og svart glimmerhár!"
-------
Samræður við matarborðið á Engjarós:
"Ég ætla að éta allan matinn minn!"
Kennarinn vill aðeins laga orðavalið og segir: "Dýrin éta en
mennirnir borða".
Þá gellur í einum 5 ára: "Nei, menn éta og konur borða!"
-------
Ein stelpan var að fara heim um hádegisbilið og snýr sér við í dyrunum
og segir: "Bless krakkar!"
Þegar hún lokar dyrunum heyrist í einum 5 ára: "Vá...! Hún
hafði geggjað sæta rödd núna!"
-------
4 ára strákur á Smára var á leið út á leikvöll, en hafði verið annars
hugar og gleymt að fara flest útifötin sín.
Gulla stoppaði hann í dyrunum og vildi aðeins hjálpa til. Sem smá
vísbendingu sagði hún:
"Það vantar eitthvað á höfuðið á þér..." (og átti við húfuna).
Þá svarar hann strax: "Já, heilann! Ég gleymdi að setja hann
í mig í morgun".
-------
Tveir 4 ára drengir voru að leika sér á stórum steinum þegar annar sagði
við Hófý:
"Hann er Mikki refur og ég er Klirfi lifurmús!"
-------
Sá sami og hér fyrir ofan sagði eitt sinn við Siggu:
"Ég ætla að bjóða þér og Sunnu til Kína".
"Nú...!" svaraði Sigga. "Ert þú á leiðinni til Kína?"
Hann svarar: "Nei... ég er að grafa göng úr garðinum mínum!"
-------

Margt að sjá á Mallorca
Gulla var að spjalla við 4 ára dreng úti á leikvellinum, um dýr í
útlöndum og þess háttar.
Þá sagði hann kotroskinn: "Þegar ég var á Mæjorka sá ég krókódíla...
og líka háhesta!!"
(sem reyndust vera gíraffar
)
-------
Nýtt í jarðfræðinni
Einn 4 ára var úti á leikvelli og sýndi Gullu stoltur
nokkra ljósbrúna
steina sem hann hafði í lófanum.
"Fannstu svona fallega brúna steina?" spurði
Gulla.
"Nei, þetta eru hunangs-steinar!!" svaraði hann að bragði.
-------
Klædd í blæju...
Ein 5 ára var að þvo sér um munninn inni við vaskinn.
Hún lagði klútinn yfir nef og munn og var furðu lostin á svipinn:
"Heyrðu!! Ég er bara alveg eins og útlensk prinsessa!!"
-------
Stórar gulrætur..?

Ein 5 ára: "Þegar gulrótin var tekin upp úr garðinum hjá mér
þá þurfti bara að toga hana upp með kaðli!"
-------

Komin í ástandið...?
Stúlka, 5 ára, segir hróðug við Gullu:
"Nú er ég sko búin að fá ástand!"
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að um var að ræða
lítinn pall til að stíga upp á þegar hún þarf að ná í
vaskinn á baðherberginu :o)
-------