Velkomin á Gleym-mér-ei
Skólaárið 2009 - 2010 eru 24 börn á Gleym-mér-ei. Þau eru öll fædd árið 2007.
Á Gleym-mér-ei er unnið markvisst með námsefnið 1, 2
og byrja í gegnum allt starf með börnunum. Í hópastarfi lærum við að
þekkja líkamann okkar og vinnum ýmis verkefni í tengslum við
skynjun. Við leggjum áherslu á söng, vísur og sögur til málörvunar
auk þess sem við lesum fyrir börnin og erum með ritmál sýnilegt.
Unnið er með óhefðbundin efnivið i könnunarleiknum. Það er lögð
áhersla á að hver einstaklingur fái notið sín á eigin forsendum. Það
er stutt við áhugasvið og færni einstaklingsins til að efla
sjálfsmynd hans og styrkja í námi og þroska. Að læra í gegnum
leikinn er okkar markmið og leggjum við því áherslu á frjálsan leik
auk þeirra skipulögðu stunda sem börnin taka þátt í.
Hér til hliðar eru tenglar á síður sem við munum uppfæra reglulega á næstu mánuðum.