SUMARLOKUN KIÐAGILS VERÐUR FRÁ 9. JÚLÍ TIL OG MEÐ 3JA ÁGÚST 2012

 

Gleym-mér-ei
Engjarós
Smári
Sóley
Sérkennsla
Starfsfólk
Grænfáninn
Leikskólalæsi
SMT-skólafærni
Vinarót
Foreldraráð
Upplýsingar
Eldri fréttir
Ýmsir viðburðir
Söngtextar
Gullkorn barnanna

 

 

Gestabók
 

 

 

Leikskólinn Kiðagil

Verndum umhverfið Endurnýtum allt sem
 hægt er
Flokkum úrgang

Vinnum að jarðgerð  


KIÐAGIL
ER

GRÆNFÁNA-SKÓLI

Beinir símar:
Aðalsími: 462-1761
GSM: 846-8999

Engjarós 462-1763
Smári: 462-1791
Sóley - 462-1731
Gleym mér ei 462-1721

Smellið hér til að sjá veðurspá fyrir Akureyri
Hitastigið á Akureyri
var site="sm6leikidagil"

Skóladagatal Kiðagils
2011-2012


Sumarlokanir leikskóla
á Akureyri
2011-2012

Í leikskóla er gaman“
skólavalsbæklingur
Skóladeildar

Ný menntastefna

Viðbragðsáætlun
Kiðagils

Inflúensa.is

 Ráðgjafartorg

Frá ungbarnavernd

Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri

vegna skoðunar 2 1/2 árs barna og

4ra ára barna.

 

 

  Dagbókin okkar:

   

Næsti starfsmannafundur verður 16. febrúar. Kiðagil lokar kl. 12:15 þann dag.

      


 

 

 


Í aðalnámskrá leikskóla segir:
Tvær manneskjur kunna til dæmis að skilja tiltekinn texta á ólíkan máta ...
Hjá okkur er það oftast svo að barnið skilur ekki textann fyrr en það er orðið 5-6 ára, með undantekningum þó. Þessi unga dama, sem er á Sóley, er þó ekki í nokkrum vandræðum með að lesa fyrir aðra. Hún er  nefnilega læs á myndir og góð mynd segir í raun meira en nokkur orð.

27. janúar: Loksins komust eldri börnin í Hlíðarfjall en þangað var farið á miðvikudaginn var. Veðrið var fínt og færðin góð sögðu þau þegar þau komu heim með blik í augum og blómlegar kinnar. Frostið setur skurk í reikninginn hjá börnunum sem almennt leiðist að vera mikið klædd en undanfarna daga hefur flíkunum verið hlaðið utan á þau sem sjaldan fyrr. Sum standa fyrir framan dyrnar, fást ekki til að hreyfa sig en kvarta yfir kulda, vilja fara inn og engar refjar. Þá þurfa ,,útikonurnar" að beita öllum sínum fortölubrögðum til að kveikja áhuga á mýmörgum möguleikum sem vetrarríkið býður upp á. Önnur börn skoppa út himinsæl og finna sér strax eitthvað að gera ýmist ein eða með öðrum. Það gerir starf kennara og leiðbeinenda óneitanlega mun áhugaverðara og meira krefjandi hversu ólík börnin eru bæði sem persónuleikar sem og vegna mismunandi aldursskeiða og uppeldis.

SMT: Í gær, fimmtudag, var SMT-umbun á Smára. Börnin völdu sér að fá að koma með nesti með sér í skólann. Það bragðaðist ótrúlega vel brauðið að heiman og sum voru með nestistbox sem voru full af góðgerðum. Það þótti bera vott um mikið sjálfræði að geta skotist í boxið sitt og fengið sér bita þegar sulturinn svarf að. Hins vegar urðu ferðirnar ansi margar hjá sumum þannig að það má ljóst vera að þau hafa ekki náð þeim þroska sem þarf til þess að láta málsverðina nægja, ekki frekar en sumir aðrir sem eldri eru og reyndari.

Leikskólalæsi í Kiðagili: Á Engjarós hafa börnin útskrifast með umtalsverða þekkingu um himingeiminn, að meðtaldri jörðinni, og nú er kastljósinu beint að sjálfu landi elds og ísa, landinu okkar Íslandi. Það hentaði vel að byrja á sama tím og tekið var á móti þorranum enda eru þorrablót leifar frá heiðnum forfeðrum okkar, víkingum og þrælum, sem fundu landið. Voru þrælarnir kannski kristnir? Það þarf að athuga það mál betur. Farið inn á tengla deildanna og lesið betur það sem þar er skrifað um viðfangsefni barnanna ykkar.

kveður kuldaljóð, Kári í jötunmóð



kveður kuldaljóð, Kári í jötunmóð

Góða helgi.

12. janúar: Í þessari viku voru vetrarleikarnir og svo sannarlega þurfti ekki að kvarta undan snjóleysi. Í gær fóru yngri börnin í Hlíðarfjall og þar var heldur gott færi”. Harðfennið og hálkan urðu til þess að þoturnar stóðu undir nafni og þutu niður brekkuna í rökkrinu. Hraðinn var heldur mikill til þess að litlar hendur og reynslulitlir heilar vissu hvernig bregðast þyrfti við til að forðast árekstra, við hvort annað eða girðingarnar. Nú voru góð ráð dýr og til ýmissa ráða gripið. Kennararnir renndu sér niður við þriðju þotu til þess að afstýra slysi, starfsmaður skíðamiðstöðvarinnar setti upp boga, til hliðar við brautina, sem annar hópur svigaði í gegnum og sá þriðji æfði sig í að standa á töfrateppinu. Þau svifu upp brekkuna,duttu á bossann, hlupu niður aftur og svifu svo upp á nýjan leik. Mörg barnanna voru orðin býsna leikin í að nota græjuna.

 

 

 

 

 

Eins og sjá má var talsvert rökkvað ennþá og skilyrði til myndatöku því ekki sem allra best. Fleiri myndir af fjallaferð yngri barnanna finnast þó hér.

 
Hér heima voru líka vetrarleikar. Kennararnir útbjuggu ýmsar þrautir og leiki í snjónum sem börnin á Smára og Engjarós leystu glæsilega eins og þeirra er von og vísa. Í dag, föstudag, áttu þau að fara í fjallið en því var því miður frestað vegna færðar í fjallinu. Myndirnar sem teknar voru hér heima eru almennt ekki sérlega góðar og er þá ekki vitað hverju er um að kenna, myndasmiðnum, myndavélinni, aðstæðum og eða fyrirsætunum.  

         

Fleiri myndir frá vetrarleikum eldri barnanna finnast hér:

 

ATH lítilsháttar breyting hefur orðið á sumarleyfislokun Kiðagils!!


 

 

 

Sumarlokun Kiðagils verður frá 9. júlí t.o.m. 3. ágúst.

 

FUNDARGERÐ SKÓLANEFNDAR

 

Skólanefnd 9. janúar 2012
Skólanefnd samþykkir að sumarlokun leikskóla 2012 verði í tveimur tímabilum. Fyrra tímabilið verður frá 25. júní til 20. júlí og seinna tímabilið verður frá 9. júlí til 3. ágúst. Skólanefnd samþykkir að þetta fyrirkomulag verði sett upp til þriggja ára þar sem leikskólum er raðað niður á tímabilin. Þessi niðurstaða skólanefndar tekur mið af umsögnum sem bárust frá starfsmönnum leikskóla og foreldraráðum auk þess sem horft var til foreldrakönnunar frá vori 2011.


Hrafnhildur G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi

 

Sumarlokun Kiðagils verður frá 9. júlí t.o.m. 3. ágúst.
 

Til foreldra í leikskólum á Akureyri

 

 

 

Á hverju ári berast skóladeild umsóknir þar sem foreldrar óska eftir að flytja börn sín milli leikskóla innan bæjarins. Að því tilefni vill skóladeild benda á eftirfarandi.

 

Aðalinnritun í leikskóla fer fram í apríl / maí ár hvert. Því er mikilvægt að allar beiðnir um flutning hafi borist skóladeild Akureyrar fyrir 30. mars ár hvert. Ef umsóknir berast eftir þann tíma er ekki hægt að tryggja að flutningur geti átt sér stað fyrir væntanlegt skólaár.

                                                                                                            Skóladeild Akureyrar

 

 

    

Smt. Í haust gengur í gildi breyting á reglutöflum þar sem gert er ráð fyrir að hver deild kenni reglurnar í þeirri röð sem hentar viðkomandi aldri best að mati starfsfólks. Nokkrar breytingar verða líka á reglunum t.a.m verður Ein breytingin sú að kenndar verða reglur í hreyfistundum en ekki í salnum. Þá gilda þær bæði í hreyfistundum á deild og í íþróttahúsinu þegar þar að kemur.

Leikskólalæsi: Hefðbundið þemastarf er farið af stað og eins og sjá má á námsáætlunum deildanna fléttast Leikskólalæsið þar mjög inn ekki síður en annars staðar. Á Sóley eru börnin að fræðast um dýrin. Hér eru nokkrar myndir frá deildinni. Unnið er með Sögugrunninn sem er námsgagn hannað af Guðrúnu Sigursteinsdóttur og Rannveigu Oddsdóttur. Sögugrunnurinn er sérstaklega ætlaður til þess að efla málþroska og frásagnarhæfileika elstu barnanna en virkar líka afskaplega vel á þau yngri.

       
       

       

6. janúar: 1. vika ársins er liðin og stöðugt hækkar sól. Umferð úti í garðinum er erfið vegna fannfergis og stubbarnir okkar koma inn eftir útiveruna, stundum kaldir en oftar örþreyttir eftir baráttuna við snjóinn. Venjubundin dagskrá deildanna er ekki hafin nema á Engjarós en þar eru börnin ólgandi af óþreyju eftir að taka til hendinni í hópastarfi og nú hafa þau útskrifast frá himingeimnum og eru komin heim til litla Íslands. Fleiri myndir má sjá hér.
 

 

Börnin á Smára fóru í Þrettándadagsgöngu um hverfið og gáfu kuldabola langt nef sem fljótlega varð fallega rautt og hraustlegt. Á höfðinu báru þau fína álfahatta sem þau útbjuggu í vikunni. Fleiri myndir má sjá hér:

Desembermyndir frá Sóley finnast hér og frá Gleym mér ei eru hér.

Smt innlögnin hefst að fullu í janúar. Kennsluáætlun annarinnar má sjá hér.
Í nóvember komu aðilar frá öðrum SMT skólum og skóladeild. Þeir gerðu könnun hjá fulltrúum kennara og barna í skólanum til þess að kanna hversu vel þeir hefðu tileinkað sér kennsluna. Það er skemmst frá því að segja að úrvinnslan hefur nú borist í hendur okkar og í ljós hefur komið þetta ofurklára lið sló öll met með hæsta skor Smt skólanna á Akureyri.

4. janúar: Kæru foreldrar!  

Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu sem eru mismörg en öll góð.  Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samskipta við ykkur á árinu.

Vinsamlega athugið að örlítið breytt skóladagatal vorannar er komið á heimasíðuna, sjá hér!

Kæru foreldrar og börn!

Nú eru jólin rétt handan við hornið! Starfsfólk í Kiðagili óskar ykkur gleðilegra jóla, árs og friðar.
Hafið það nú gott um jólin og við sjáumst, sum milli hátíða, annars 02. janúar , endurnærð og tilbúin að takast á við nýtt frábært ár!

16. desember.Það er nóg að gera í Kiðagili þessa dagana sem endranær. Undanfarna daga hafa börnin heimsótt Nemó á Bautanum og þegið kakó og kleinu, farið í heimsókn í Glerárkirkju, ljósaferð í strætó, svo eitthvað sé nefnt. Í dag var afmælissöngsalur þar sem sungið var til barnanna sem eiga afmæli í desember. Boðið var upp á sýningu á tískusýningu þar sem deildir þreyttu keppni sín á milli í fatahönnun úr endurnýtanlegu efni. Útkoman var glæsileg eins og sjá má hér. Í hádeginu var hátíðarmatur og ís í eftirmat. Ekki amalegt það!

                         
 Breyting á matseðli leikskóla. Meira um það í Skóla-akri. 

Munið jólaballið á sunnudag kl. 11:00 til 12:30 í sal Giljaskóla.

Munið jólaballið á sunnudag kl. 11:00 til 12:30 í sal Giljaskóla.

frá kl. 11:00 til kl. 12:30.

25. nóv. Þá virðist veturinn skollinn á og var það seinna en von var á. Sem betur fer eigum við í Kiðagili leikefni innandyra sem getur sem best komið í staðinn fyrir sandinn sem frýs. Við eigum líka  rólu sem hægt er að grípa í þegar því er að skipta. Það getur verið ansi erfitt að róla hátt upp í geim þegar maður er kappklæddur í peysur og galla, kuldaskó og vettlinga og húfurnar koma í veg fyrir frelsistilfinninguna sem fæst þegar hárið sveiflast fram og til baka í takti við hreyfingar rólunnar. Hinsvegar kemur ekkert í staðinn fyrir útiloftið enda er farið út, nánast hvernig sem viðrar. Vikan var ósköp venjuleg og tíðindalítil að öðru leiti enda vikan áður mjög viðburðarík.  Yngri börnin héldu áfram að reyna að temja sér tillitsemi við hvert annað á snyrtingunni og eldri börnin rifjuðu upp hvernig best er að haga sér í samverustund til þess að sem minnst truflun verði og þau geti notið þeirrar skemmtunar sem þeim er boðið upp á í það skiptið, hvort heldur er sögulestur, söngur eða samræður. Dekurdagur er nýlega liðinn og þá fengu kennarar á yngri deildunum tækifæri til þess að bæta fyrir allt þetta reglufargan og nudda litlar tær. Á eldri deildunum sáu börnin sjálf um að nudda hvert annað en fengu hinsvegar naglalakk í ýmsum litum á fingurneglurnar. 

Góða og gleðilega aðventu.

 

   

Myndir hér

 

Myndir hér

 

Myndir hér

   

Myndir hér.

 

Myndir hér

 

Myndir hér

18. nóv. Talsvert var um að vera í síðustu viku, auk hefðbundinnar venjulegrar dagskrár. Á Degi eineltis fóru eldri deildirnar út á Kiðatorg og hringdu bjöllum til þess að sýna stuðning sinn við málstaðinn.  Á degi íslenskrar tungu var hinsvegar svo mikið um að vera að skipta þurfti dagskránni niður á milli tveggja daga. Kennararnir á Smára sýndu Hunangsfluguna og fífilinn en Sóleyjarkennarar sýndu fingraþulu á miðvikudag.. Síðan komu unglingar úr VMA og sýndu valda búta úr leikriti um Hróa Hött.  Á fimmtudag fóru kennararnir á Gleym mér ei með vísuna sem hann Jónas Hallgrímsson er sagður hafa ort 4ra ára gamall, hann hefði verið á Smára. Börnin á Gleym mér ei aðstoðuðu og klæddu sig í flíkurnar sem nefndar eru í vísunni. Kennararnir á Engjarós færðu söguna um Geiturnar þrjár í leikbúning. Þrátt fyrir að þeir pössuðu sig á því að vera hvorki yfirdrifnir í orði né æði fékk einstaka viðkvæm sál gæsahúð og beygði jafnvel út af. Þá þótti gott að hafa einhvern fullorðinn í seilingarfjarlægð og getað skriðið í fang hans. Gilti þá einu af hvaða deild viðkomandi kennari var, allt er hey í harðindum eins og segir einhversstaðar.

 

 

Bjöllum klingt í tilefni Dags eineltis

 

Sóleyjarkennarar sýndu fingraþuluna Þumalfingur er mamman sem var mér vænst og best.
 

  Buxur vesti brók og skó.
bætta sokka nýta,
húfutetur, hálsklút þó.
háleistana hvíta.
   

Á degi íslenskrar tungu

 

Hver er að trítla yfir brúna mína?

  Kennararnir á Smára sögðu sögu Jónasar Hallgrímssonar um Fífilinn og hunangsfluguna á Degi ísl. tungu.

Staða Skólafærninnar er sterk í húsinu.  Á yngri deildunum eru börnin að læra að gefa öðrum næði á salerninu. Á eldri deildunum eru börnin hins vegar að rifja upp reglurnar sem gilda á heimastofunni.  Tvær þeirra reglna ættu að verða orðnar börnunum nokkuð tamar þar sem þær eru eins og rauður þráður í gegnum flest svæði skólans. Engu að síður þarf alltaf að vera að minna þau á að hafa hendur og fætur hjá sér og nota inniröddina sem virðist stinga af reglulega þegar á þarf að halda.

Skrifað á stétt     

Leikskólalæsið brýst fram hér og þar og allsstaðar. Það er ótrúlega gaman að sjá hvernig börnin notfæra sér nýfengna þekkingu og hvernig hún brýst fram við ólíkar aðstæður börnin finna þessa knýjandi þörf til þess að æfa sig. Nafnið hér að ofan skrifaði 3ja ára stúlka svona lystilega vel og af mikilli natni.

Í dag föstudag var rýmingaræfing vegna Brunavarna. Það er skemmst að segja frá því að börn og fullorðnir héldu ró sinni og einni til tveimur mínútum eftir að bjallan hringdi voru allir komnir á sinn stað utandyra. Þá kom í ljós hvað sumir eru lánsamir að hafa vanið sig á að vera í inniskóm því það fór ekki hjá því að sokkar og sokkabuxur blotnuðu í gegn. Minnsta fólkið slapp þó þurrt á fótum þar sem kennararnir skveruðu þeim á milli hússins og vagnaskýlsins en þar áttu þau fyrsta athvarf eftir að út var komið.
Góða helgi og endilega skoðið myndir á síðum deildanna.


 

 

 


 

Ath. Ath.  Ath.  Ath.   Ath.   Ath.   Ath.

Breyting á gjaldskrá:
Samkvæmt breytingunum munu námsmenn greiða samkvæmt afsláttargjaldskrá ef þeir stunda nám sem stendur í a.m.k. eitt ár í stað tveggja áður. Ef annað foreldri er í námi og hitt foreldrið atvinnulaust greiða þeir samkvæmt afsláttargjaldskrá. Nánari upplýsingar um vottorð og skilafrest til skólastjóra vegna afsláttarins er hér að finna.

 

 

 

Eldri fréttir hér

 

Innritun í leikskóla fyrir næsta skólaár.

Foreldrum sem óska eftir leikskólavist fyrir börn sín á komandi skólaári er bent á að umsóknir um leikskóla þurfa að berast skóladeild  fyrir 31. mars n.k. Hægt er að sækja um í rafrænu formi á heimasíðu skóladeildar

http://skoladeild.akureyri.is/
 

Fyrstu innritunarbréfin verða send út í aprílmánuði og gert er ráð fyrir að aðlögun barna geti í einhverjum tilvikum hafist í maí mánuði. Stefnt er að því að allri aðlögun verði lokið í september. Tímasetning aðlögunar tekur mið af því hvenær 6 ára börn leikskólans hætta vegna grunnskólagöngu. Undanfarin ár hefur þróunin verið sú að mikill meirihluti 6 ára barna dvelur í leikskólanum fram að sumarlokun eða fram að grunnskólabyrjun

 


 

 

   Notaður er Windows Explorer í tölvum leikskólans.

LEIKSKÓLINN KIÐAGIL, Kiðagili 3, 603 AKUREYRI.
Sími: 462-1761. Veffang:
kidagil@akureyri.is.
Heimasíða: http://kidagil.akureyri.is

Umsjónarmaður heimasíðu: Ingibjörg Hallgrímsdóttir,aðstoðarskólastjóri.